03.05.2012 17:57

Móri farinn úr hreiðrinu

Það er víst þannig að maður getur ekki endalaust safnað að sér hrossum, og sem námsmaður og verandi ein í þessu þá þarf maður víst stundum að velja og hafna.  Mánadís er fylfull og kemur þá vonandi með folald í sumar, þannig ég tók þá ákvörðun að athuga hvort ég gæti selt Móra, en vissi frá byrjun að það myndi aðeins gerast ef ég fyndi rétta eigandann, og mér tókst svo sannarlega að gera það!  Móri er fluttur norður og er þar í góðu yfirlæti hjá nýjum eiganda :)
Það kom nú smá panic í mann þegar ég fattaði að ég ætti engar almennilegar myndir af honum í reið, þannig þegar nýr eigandi og vinkona komu að skoða þá fékk ég þær til að taka myndir fyrir mig af mér og stráknum :)


Brokkið bara byrjað að lúkka nokkuð vel hjá stráknum:)

Bölvuð myndavélin reyndar náði bara að taka örfáar myndir áður en minniskortið fylltist, en það voru einhverjar nothæfar :)
Móri er einn af þessum hestum sem manni finnst bæta sig í hverjum einasta reiðtúr, sem er virkilega skemmtilegt!  Á þriðjudaginn var hann á ágætis siglingu á töltinu og ég ákvað að prufa slaktaumatöltið, guttinn tók öruglega rúma 10 metra á vel reistu og flottu tölti með tauminn alveg slakann! :)  Var ekkert smá stolt af honum :)
En núna er komið að því að hann fari að gleðja aðra, þessi hestur er algjör snillingur og öðlingur :)
Er búin að heyra frá nýjum eiganda að hann sé að standa sig vel í því að heilla alla, sem kemur nú ekki á óvart :)


28.01.2012 19:09

Flakk á netinu

Maður finnur ýmislegt þegar maður fer að forvitnast á netinu :)  Fann þetta video af stóðhestinum sem Móri er undan, þetta var tekið á heimsmeistaramótinu 2007 þegar hann (Assi frá Stóra-Hofi) var að keppa í T1.



Hæga töltið er kanski ekkert voðalega eftirtektarvert en ég verð nú að segja að þegar hann er kominn á yfirferðina þá er þetta eitthvað að sjá :)

Árið 2005 (minnir mig að það hafi verið) þá varð Assi Noregsmeistari í tölti, ekki verra að eiga trippi undan meistara :)

Annars þá er Móri alltaf að bæta sig, töltið tók smá tíma hjá honum, var alltaf hreint en fyrsta veturinn var það bara svo löturhægt, núna tekur hann stundum ágætis spretti þegar hann nennir því og manni finnst maður fljúga áfram á töltinu.  En svo stundum þá þykist hann ekki geta þetta og dettur niður á brokkið þegar hann nær ákveðinni ferð, en þetta er allt í vinnslu hjá okkur :)  Hann er nú bara 6 vetra karlinn :)

26.01.2012 18:27

Kær kveðja

Í gær kvaddi merkismaður eftir stutta baráttu við krabbamein.  Kennarinn minn úr Reiðmanninum, hann Reynir Aðalsteinsson, varð veikur seinni part síðasta árs og því miður náði hann ekki að sigra veikindin.

Ég er svo þakklát fyrir að hafa náð að læra hjá honum því ég tel það hafa verið alveg ómetanlegt (sem ég hef sagt síðan ég var í þessu námi, sé ekki eftir krónu sem fór í þetta).  Áður en ég fór í Reiðmanninn hafði ég aðeins verið í hestunum í sirka 4 ár, ég hafði farið á örfá námskeið og kunni ekki mikið, en það var ekki fyrr en ég fór að læra meira sem ég gerði mér grein fyrir því hversu lítið ég vissi í raun!
Reiðmennska er erfitt fag og eitt sem maður getur eytt allri æfinni í að kynna sér, án þess þó að vita nærrum því allt.  Reynir sagði sjálfur að hann væri enn að uppgvöta nýja hluti og alltaf að læra.


Ég og Reynir eitthvað að ræða hvernig lokaprófið gekk hjá mér.

Ég kláraði Reiðmanninn 2010 og tók svo einn vetur í viðbót hjá Reyni þar sem farið var í frumtamningarnar, samhliða því ákvað ég að prufa að starfa við tamningar og fékk þannig að æfa mig á nokkrum hestgerðum sem var alveg frábært.  Ég þakka Reyni og öðrum sem komu að kennslu í Reiðmanninum algjörlega fyrir allt sem gekk vel og þá breytingu sem ég hef séð á mínum eigin hrossum og mig hlakkar svo til að sækja fleiri námskeið!  Svo ótrúlega skemmtilegt að fara til mismunandi reiðkennara og læra mismunandi aðferðir :)  Þótti mér líka alveg hrikalega vænt um það þegar Reynir sagði að það væri töfrum líkast hvað mér væri búið að takast að ná úr merinni minni (henni Mánadís).


Reynir hló mikið af Móra og sagði að ef hann væri mennskur þá væri hann sífellt að segja brandara, hann sagði líka að Móri leyndi á sér og ég ætti alls ekki að gera lítið úr honum, þetta væri sniðugur hestur.  Þegar líður á er ég að sjá það betur að það er alveg rétt hjá honum, hann leynir svo sannarlega á sér.

En Reynir skilur eftir sig heilmikil fræði og mun hann halda áfram að hafa stór áhrif á reiðmennsku á Íslandi um ókomna tíð.  Reiðmaðurinn var byggður upp á hans hugmyndafræði og nú er það námskeið kennt víðsvegar um landið undir leiðsögn frábærra kennara, ef einhver er í vafa um hvort þetta nám sé þess virði að taka það, þá mæli ég 100% með því!  Þetta var svo skemmtilegt og gagnast manni svo sannarlega, fyrir utan það augljósa (maður verður betri knapi og nær fram meiri árangri með hrossinu) þá hjálpar það manni að njóta hestamennskunnar svo margfallt betur!  Erum við ekki öll í þessu þess vegna?  Vegna þess að við erum að reyna að njóta áhugamálsins okkar?


Móri ljúflingur fær knús.

Annars er það helst að frétta að Mánadís og Móri komu inn í byrjun desember, persónulega hefur mér ekki þótt vera skemmtileg færð undanfarið og get ég barasta ekki beðið eftir vorinu! 
Mig vantaði svo undirdýnu undir hnakkinn og ákvað að prufa að panta mér eina úr gæru frá AJ Leðursaumi, hlakkar til að prufa hana :)  Vonandi að hún eigi eftir að vera gagnleg fyrir bæði hest og hnakk.  Svo sýnist mér hún líka bara vera svo flott :)


Mánadís og Móri í smá leik í gerðinu

05.06.2011 20:55

Ekki svo heppin þetta sumarið

Þann 26. maí síðastliðinn fékk ég þær fréttir að Mánadís hefði kastað um nóttina, en folaldið var svo stórt og þetta var hennar fyrsta köstun, að hún kom því ekki frá sér án aðstoðar.  
Það stoppaði á mjöðmunum og grey Mánadís baslaði við það öruglega í dágóðann tíma að reyna að koma því frá sér en gafst upp.  

Sem betur fer var hún undir eftirliti hjá frábæru fólki, þau fylgdust vel með en merar eiga það nú samt til að velja sér tíma til að kasta þegar enginn sér til.  

En þau komu að henni og kölluðu til dýralæknis sem kom og náði að bjarga merinni, en folaldið var dautt.  Þetta var stór, rauð meri, og þykir mér alveg einstaklega sorglegt að svo hafi farið.  Svo veit maður ekki hversu mikið dýrin skilja, og hversu langann tíma það tekur hana að komast yfir missirinn.

Greyið Mánadís var frekar mikið bólgin og gleið eftir átökin, fékk sýklalyf og bólgueyðandi en átti erfitt með að hreyfa sig.

Þegar svona nokkuð gerist þá sér maður hversu mikilvægt það er að hafa gott eftirlit með merum sem eru komnar að köstun, ef enginn hefði verið til að fylgjast með þá hefði Mánadís sjálfsagt líka drepist og enginn komist að því fyrr en nokkrum dögum síðar.

Eftir svona reynslu þá verður maður eilítið smeykur við að senda merina undir stóðhest aftur, en dýralæknirinn sagði að það væru mjög litlar líkur á að þetta gerðist aftur og ég ætla að leyfa mér að vera bjartsýn.  
Ég ætlaði nú ekki að senda Mánadís aftur undir stóðhest í sumar, en þar sem það er ekkert folald í ár, þá er planið að fara með hana aftur undir Klæng.  Vonandi gengur það skipti betur, fyrsta folaldið í minni ræktun fórst, en kanski er það rétt að fall sé fararheill og það eigi eftir að ganga betur næst.

30.04.2011 19:05

Natural Horse-Man-Ship

 Meðan ég var erlendis um daginn rakst ég á þessa bók í einni bókabúðinni, fletti aðeins í gegnum hana og ákvað svo að kaupa hana vegna þess að ég vissi að Pat Parelli hefur ýmislegt gagnlegt að segja.

Ég er bara búin með örfáa kafla og þessi bók er strax byrjuð að hjálpa mér!  Hann skilur hvernig hesturinn hugsar og nýtir sér það til að fá hann með sér, svo útskýrir hann allt svo vel að þetta virðist vera voða einfalt og manni líður hálf kjánalega að hafa ekki fattað þetta áður emoticon 
Það eru ekki bara æfingar í þessari bók, heldur fer hann líka í algjör grunnatriði sem hjálpa manni að skilja betur hreyfingar hestsins og hvernig maður getur auðveldað þessar hreyfingar.  

Hann talar um hvernig maður fer að því að ná þannig sambandi við hestinn að hann vilji vera hjá manni og allt fyrir mann gera!

Margt af því sem hann skrifar um man ég nú samt eftir að hafa heyrt áður meðan ég var í Reiðmanninum, og greinilegt að hann og Reynir eru í svipuðum pælingum, en sumt af þessu skildi ég kanski ekki alveg nógu vel þá og nú er að kveikna á heilu seríunum hjá mér! hehe

Ég vildi allavega mæla með þessari bók við alla þá sem hafa áhuga á að bæta við þekkingu sína, maður getur alltaf blómum á sig bætt :)  Það er hægt að fá hana á Amazon á góðu verði :)

02.03.2011 19:56

Smá fréttir

Spurning hvort maður ætti ekki að nota þetta blogg eitthvað!

Nú er Móri búinn að vera inni frá byrjun desember og Tristan var tekinn inn um miðjann Janúar ásamt Veröld hennar Ásrúnar (Veröld er til sölu).


Veröld, Tristan og Móri að leik

Móri var aðeins of langt kominn fyrir frumtamninganámið þannig ég ákvað að taka Tristan með mér.  Það gengur bara nokkuð vel og vildi ég bara óska þess að ég gæfi mér meiri tíma til að vinna með hann.  Hann vildi svolítið reyna að hundsa mann fyrst þegar það var verið að lónsera hann, en hann hætti því snemma, því hann komst að því að svoleiðis gengur barasta ekki ;)


Kom mér nú eiginlega bara á óvart hvað hann var duglegur.

Við létum tryppin bakka, víka á fram og afturpart, stökkva yfir tunnur, brokka yfir spírur og sendum þau frá okkur í gegnum hlið og allt úr hendi.  Allt gekk þetta nú bara nokkuð vel með hann Tristan og virtist hann hafa virkilega gaman af því að stökkva yfir tunnurnar, því hann var alveg til í að gefa í þegar hann var að koma að þeim.
Síðasta verkefnið var svo að fá þau til að fara upp á pall, Tristan var nú ekki alveg á því fyrst að klöngrast upp á pallinn og tók nokkrar tilraunir við að koma honum þangað, en það tókst á endanum og held ég nú barasta að hann hafi verið montinn með sig!


Ágætis tölt fyrir rúmlega mánaðartamningu

Tristan bæði brokkar og töltir undir knapa, og á virkilega auðvelt með töltið.  Þegar þessi mynd var tekin var ég í rauninni voða lítið farin að eiga við taumsambandið (aðallega vegna þess að ég hef ekki gefið mér tíma í það) en hann er allur að "stækka" strákurinn þessa dagana, ég er farin að nota beislið meira og hef verið að vinna með hann í tvítaum.

Virkilega gaman að því líka hvað hann virðist vera slakur, hef aðeins prufað að ríða út fyrir gerði á honum frá húsi og var ekkert smá ánægð með hann!  Hann er enn svolítið hissa á því að hann megi ekki fara þangað sem hann vill fara (þarna er gras! Þetta er styttri leið!) en það tekur nú ekki mikið rifrildi að sannfæra hann um að fara mína leið ;)


Móri á svífandi brokki.

Það gengur bara vel með Móra, þetta er vinnuglaður hestur og mér líður bara mjög vel á honum.  Hann er öruggur og rólegur, en getur alveg gefið aðeins í ef maður biður um það!  Ég hef nú samt verið að vinna með hann í sömu vinnu og við erum með frumtamningatrippin í, hann hefur nú bara gott af því :)
Gott að hafa hest sem maður getur farið í reiðtúra á, en mikið sakna ég nú samt Mánadísarinnar!  Það er svo æðislegt að eiga hest sem bara kann allt og maður treystir algjörlega!  En hún kemur nú með folald fyrir mig næsta sumar og ég reyni bara að hugga mig við það :)

Annars þá er það helst í fréttum að Veröld frá Skeggsstöðum er til sölu, þetta er um mánaðartamin meri fædd 2006 undan Skrúð frá Berjanesi.  Róleg og þæg, verður öruglega stabílt fjölskylduhross með frekari tamningu.

Hér er smá myndband með kjánaskap í mér að sýna hversu róleg hún Veröld er nú, hún er nú svosem ekki stór, en ég er það hinsvegar ;)



10.10.2010 13:04

Tamningar og þjálfun

Ég hef ákveðið að safna mér smá reynslu í tamningum og þjálfun og ætla að taka að það að mér í vetur :)  Ég er búin að redda mér húsi í Víðidalnum og nú er bara að finna hross :)
Ég er búin með námið Reiðmanninn á Hvanneyri og tók líka frumtamningarpartinn þar, ég hef aðeins dundað mér við tamningar og tók Móra með mér upp á Hvanneyri í mat til Reynis, hann gaf mér mjög góða umsögn þar og leist vel á þetta hjá mér :)


Ég og Móri í frumtamningarmatinu, vel afslappaður á feti :)

Við lærðum heilmikið á þessum tveimur árum í sambandi við taumhald, burð og hreinsun á gangi og tel ég að þetta allt muni koma að góðum notum í frumtamningunum :)  Svo hafa fulltamdir hestar líka gott af smá fínpússun fyrir veturinn :)
Það er fátt betra en að sitja taumléttann hest sem ber sig sjálfur!

Ef einhver hefur spurningar þá er hægt að hafa samband við mig í síma 848-3534 eða e-mail sigruneh@gmail.com :)

27.09.2010 22:15

Hófar klipptir og ormahreinsun

Síðustu helgi var skroppið upp á Holtsmúla að klippa hófa og gefa ormalyf.  Allt stóðið var rekið að húsi og voru Maggi og Svanhildur á Holtsmúla 1 svo almennileg að lána okkur aðstöðuna sína :)

Eitthvað kvef var nú enn í hestunum en það var ekki alvarlegt sýndist mér, glært hor í flestum.  Svo er bara að vona að þeir séu vel haldnir fyrir haustið, flest allir svo spikaðir að varla var hægt að sjá að þetta væru hestar en ekki flóðhestar :P


Móri feitabolla, það verður gaman að taka hann inn í janúar og halda áfram með tamninguna :)

Stefnan er núna að taka inn Móra og Tristan í janúar, Móri er kominn með sirka 3 mánaða tamningu og Tristan með 1 mánuð.  Það er spennandi að sjá hvernig gengur með framhaldið hjá þeim.


Stóðið aftur rekið niður á mýri.  Tristan sést þarna, eini skjótti hesturinn.

Mánadís mætti enn bæta soldið á sig, var bara með netta bumbu.  Auðvitað er ég orðin voða spennt að sjá folaldið sem hún ætlar að koma með næsta sumar :)  Verst bara að maður gleymdi að taka mynd af stelpunni.

Námið Reiðmaðurinn er aldeilis að dreifa úr sér og er kennt á allavega 8 stöðum á landinu sýnist mér.  Frábært að þetta sé að verða svona vinsælt og að fólk sé að vilja bæta sig :)  Maður bara hálf öfundar fólkið sem er að byrja í þessu núna því þetta er svo rosalega gaman :)
Ég sótti um að fá að komast á þriðja árið í frumtamningarpartinn, vona að það gangi upp, ef svo er þá byrjar það í desember.

28.07.2010 22:00

Fight.is

Jæja netverslunin fer fljótlega að fara af stað :)  Ég er búin að senda inn fyrstu pöntunina, er reyndar ekki alveg viss hvað afgreiðslutíminn á hana er langur en auglýsi um leið og ég veit það :)

Fyrst til að byrja með verð ég bara með tvær vörur á lager, hvítann rash guard:


Ég er orðin vel spennt að eignast svona, orðin þreytt á að vera með brunasár á olnbogunum hehehe.
Hin flíkin er svo stuttbuxur

Þykir þær svo flooottaaaaar :D  hlakkar til að prufa þær almennilega!

En síðan kemur vonandi í loftið í byrjun ágúst, og verður hún þá undir Fight.is.  En þangað til er hægt að skoða vörurnar á Facebook síðunni :)
Það verða fleiri flíkur sem hægt verður að panta, en ég verð ekki með á lager og afgreiðslutíminn því aðeins lengri :)
Þetta eru vörur sem eru hannaðar fyrir bardagaíþróttir þannig þetta er eitthvað sem endist, hamlar ekki hreyfingu og auðvitað eru þau flott ;)  Ýmislegt þarna sem maður þyrfti ekki að skammast sín fyrir að vera í í ræktinni ;)

En ég er líka að semja við Gi framleiðanda sem ég er mjög spennt fyrir, eftir að hafa legið á netinu að lesa um mismunandi efni, snið, umsagnir frá fullt af fólki þá fann ég framleiðanda sem er með mjög vandaða vöru og á viðráðanlegu verði :)  Vona að það gangi upp og hlakkar þá til að geta auglýst það :)  Sá framleiðandi er svo líka með íþróttafatnað fyrir karlmenn, auðvitað verð ég nú með eitthvað fyrir bæði kynin ;)

16.07.2010 15:42

Tristan til sölu

Stundum er það nú bara þannig að maður þarf að sleppa einu til að geta gert annað.
Bæði þá er ég nú bara ein í þessu og á von á folaldið næsta sumar, og 4 hross fyrir fátæku mig eru aðeins of mikið að hugsa um. 
Svo er ég líka að skoða möguleikann að opna netverslun og einhvernveginn þarf maður að finna pening fyrir fyrstu sendingunni og var þá tekin sú ákvörðun að selja Tristan karlinn.




Tristan frá Skeggsstöðum er 4 vetra geldingur undan Skrúð frá Berjanesi og Nös frá Meðalfelli, Nös er svo undan fyrstu verðlauna stóðhestinum Skó frá Flatey II (ae 8.00)

Tristan er stór og myndarlegur og auðveldur í umgengni, hægt er að ganga að honum hvar sem er og setja múl á hann.  Ég lánaði hann í frumtamningarnámskeiðið sem var haldið í Víðidal síðasta vetur og var það mánuður.  Kennari námskeiðsins sagði að hann væri fljótur að læra og hefði verið hægt að fara hraðar með hann yfir efnið.
Tristan er sjálfsstæður í hugsun, fer þangað sem knapinn vill þó það þýði að hann þurfi að fara frá hópnum, framsækinn og samt með góðar bremsur.
Það var búið að fara á bak á honum úti tvisvar held ég.

Bætt við 20.júlí:
Hætti við að selja Tristan :)

10.07.2010 13:07

Komið fyl

Í gær fór Mánadís í sónar og það sást 23 daga fyl í henni!  Ég er semsagt að fara að fá folald undan henni og Klæng næsta sumar og er strax orðin spennt emoticon   Ég er búin að panta rauðblesótt og þykir ég nú ekki biðja um mikið, því folaldið verður nú allavega rautt, spurning hvort blesan fylgi meðemoticon 


Mánadísin fína emoticon Hlakkar til að sjá folaldið hennar

Ég er strax farin að hugsa um næsta sumar og hvað ég verð öruglega stressuð að keyra með Mánadísina og folaldið hennar í Borgarfjörð á Skáney, þar sem mig langar svo að halda undir Sólon næst (er nú búin að bíða eftir því að geta haldið undir Sólon síðan svona 2007).  Þetta er ágætis akstur fyrir nokkurra daga gamalt folald, en mér er sagt að það sé alveg í lagi.


Stikill frá Skrúð, Sólonssonur fæddur 2005 með 8.21 í ae


Sýn frá Grafarkoti, Sólonsdóttir fædd 2006 með 8.12 í ae, hellvíti flott fyrir 4v meri

Það voru nú engin afkvæmi undan Sólon komin í dóm þegar ég fór fyrst að pæla í honum, en hann heillaði mig bara, alveg eins og Klængur heillaði mig bara emoticon  Mér sýnist allavega Sólon vera að gefa nokkuð gott miðað við þau afkvæmi sem eru komin í dóm undan honum.  Við sjáum bara til hvernig það fer, sumir myndu kanski halda að ég væri að eltast við litinn, sem er kanski ekki alvitlaust, en það er nú bara lítill partur af þessu.  Hálfsystkini hans Sólons (undan Spegli frá Sauðárkróki), þau Hvítasunna frá Sauðárkróki og Straumur frá Sauðárkróki, eru líka virkilega flott og hef ég góða trú á genum Spegilsemoticon

Móri greyið er enn með kvef og það dropar þvílíkt úr nefinu á honum, en þetta fer nú vonandi að koma, ef hann verður ekki orðinn hress fyrir haustið þá þarf maður að fara að skoða að gera eitthvað í því.
Þessi pest er búin að vera þungt högg á hestamenninguna á Íslandi og valdið stórtapi hjá hestamönnum.  Vonandi fara hrossin að jafna sig fljótlega.
Móri tölti nú bara undir sjálfum sér útí haga í gær og það fyrsta sem ég hugsaði var "ég þarf greinilega að taka brokkið svolítið fyrir hjá honum". emoticon  Ég fann það í vetur að hann er ekki sterkur á brokkinu, en þá er bara eitt í stöðunni, að þjálfa það betur.
Mig er virkilega farið að hlakka til að taka hann aftur inn og halda áram með tamninguna, mér þykir svo gaman að vinna með honum og það er auðvitað frábært þegar maður finnur framför í hverjum reiðtúremoticon

Ég hef þó undanfarna daga þurft að taka erfiða ákvörðun, en ég hugsa að ég þurfi að selja Tristan.  Það getur verið að ég sé búin að finna eiganda fyrir hann og hann færi ekki langt, sem væri auðvitað frábært, mig langar að geta fylgst með stráknum, hvernig hann kemur út úr frekari tamningu og hvernig hann verður.  En málið er bara það að stundum þarf maður að sleppa einhverju til að geta gert annað.

21.05.2010 21:35

Skjótt skipast veður...

Jæja stundum skiptir maður bara um skoðun, ég ákvað allavega að drífa mig bara með Mánadís undir Klæng!  Það hefur enn ekki komið svar frá LBHÍ um hvort þriðja árið verður og ég bara nennti ekki að bíða lengur.
Ef þriðja árið verður, þá fæ ég bara lánaðann hest fram að áramótum og undirbý Móra um haustið, svo ætti ég að geta notað hann eftir áramót :)  Þetta kemur allt í ljós.

Núna get ég allavega beðið spennt eftir því þegar ég get farið með hana í sónarskoðun og séð hvort hún hafi fyljast :D  Ég er búin að panta rauðblesóttan, glófextan hest, sjáum til hvort Mánadísin geti ekki bakað það handa mér ;)

Mikið er þetta nú spennandi!!! :)

02.05.2010 14:15

Hestapælingar - ræktun og dómar

Þegar maður er með þessa hestabakteríu þykir manni fátt skemmtilegra en að skoða og pæla í stóðhestum.  Maður getur endalaust velts um á feng, skoðandi ættir fram og til baka, dóma og kynbótamöt, afkvæmi og forfeður.

Fólk hefur misjafnar skoðanir á þessu öllu saman og myndast sjaldnast jafn heitar umræður á vefmiðlum hestamanna heldur en þegar er verið að ræða gæði kynbótahrossa, fólk leitar að mismunandi kostum og horfir á mismunandi galla.  Allir hafa skoðun og er það nú bara hið besta mál, en verður nú að segjast eins og er, margt af þeim skoðunum sem fólk hefur myndað sér byggist á sögusögnum og hafa fæstir persónuleg kynni af þeim stóðhestum sem um ræðir.


Sá hestur sem hefur vafalaust verið mest á milli tannana á fólki er sjálfur Orri frá Þúfu

Auðvitað segja dómar og kynbótamat heilmikið, en hvernig vitum við almennilega hvernig til dæmis geðslag hesta er?  Hversu góður er knapinn í að fela skapgerðargalla hestsins sem hann sýnir?  Hvernig er hægt að meta geðslag öðruvísi en bara með því að prufa hestinn?

Afkvæmi sem koma í tamningu hafa auðvitað heilmikið að segja, þegar sömu umsagnir heyrast úr mörgum áttum, þá hugsar maður nú að eitthvað sé hægt að trúa þeim.  En upp á móti þá veit maður heldur aldrei hvort þeir sem gefa umsagnirnar hafi hagsmuna að gæta eða bara einfaldlega vilja öðruvísi skapgerð í hrossum en maður sjálfur!

Pérsónulega er ég ekki mikið fyrir "sprengjuhesta" sem vilja svo hrikalega mikið áfram að manni líði eins og maður sitji á púðurtunnu, en það er auðvitað til fólk sem vill þessa hesta.  Ég er hrifnust af taumléttum, rólegum hestum, sem fara bara á þeirri ferð sem ég vil, geta verið rólegir meðan ég er að átta mig á þeim æfingum sem mig langar að æfa mig í en eru líka tilbúnir að gefa mér kraft og yfirferð þegar ég bið um það.  Ég er nefnilega ekki týpan sem vill taka heilu reiðtúrana á yfirferðartölti, þó það sé nú gaman að sitja gott, kraftmikið tölt, þá hefur íslenski hesturinn bara svo mikið meira upp á að bjóða!


Vinna með hest í hendi, ekki sérstök mynd en ég á nú bara svo fáar myndir, og þótt ótrúlegt megi virðast, þá er erfitt að finna myndir á netinu af hestum í svona vinnu

Nú hefur verið ákveðið að breyta vægi gangtegunda í kynbótadómi, vægi skeiðs og fets var hækkað, og vægi vilja og geðslags lækkað.  Ég fagna þessari breytingu af þeirri ástæðu að einkunn vilja og geðlags gæti verið breytileg eftir því hver situr hestinn, hversu góður er knapinn í því að fela geðslagsgallana, það getur verið dagamunur á hestum og svo er kanski misjafnt hvað fólk telur vera eftirsóknarvert þar.


Eldjárn frá Tjaldhólum, með 10 fyrir vilja og geðslag, fimm hestar hafa hlotið 10 fyrir Vilja og Geðslag

Hinsvegar þykir mér fet segja heilmikið til um geðslag hestsins, hestur sem getur slakað á og fetað vel án uppnáms, eftir að hafa tekið kraftmiklar gangtegundir og sýnt sitt besta, sá hestur fær plús hjá mér.
Gangtegund getur aðeins verið svo góð hjá hesti og ekki hægt að blekkja til um að hún sé betri en hún er.  Auðvitað er talað um að sumar gangtegundir lyggi dýpra hjá einum hesti en öðrum, og það þurfi þá að "smíða" hana í hann, við viljum helst hesta sem eru fljótir til eiga auðvelt með alla ganga, en við vitum þó að hann eigi þá gangtegund til eins góða og hann sýnir hana, þó það hafi verið erfitt að sækja hana.


Erla frá Hofsstaðaseli, 10 fyrir fet, aðeins hafa þrjú hross náð þeim árangri að fá 10 fyrir fet

Fetið virðist hafa verið að gleymast og þegar maður skoðar dóma hjá mörgum af þeim frægu stóðhestum okkar þá eru margir með mjög lágt fyrir fet.  Hvort sem það þótti ekki mikilvægt í þjálfun eða bara að hesturinn er í of miklu uppnámi til að feta vel, það þekki ég ekki.

Sjálf hef ég haft gaman að þessum pælingum síðan ég komst í þetta sport árið 2005, það eru fáir stóðhestar sem ég myndi þora að segja nokkuð til um, þar sem ég þekki þá ekki persónulega, en auðvitað eru einhverjir sem bara heilla mig.

Sem dæmi má nefna Klæng frá Skálakoti, stóðhestur sem ég á hlut í.  Sumarið 2008 var ég að flakka um netið að skoða stóðhesta (svona eins og maður gerir) og rakst þá á dóm Klængs, þótti nú nokkuð merkilegt að engin einkunn væri undir 8 (fyrir utan skeið) og ákvað nú að kynna mér hann aðeins betur.  Ég sendi e-mail á ræktanda Klængs, hann Guðmund í Skálakoti, til að forvitnast um hvað hann gæti sagt mér meira um klárinn, þegar þetta var þá var Guðmundur ekki eigandi Klængs, en umsögn hans um hestinn gerði mig bara áhugasamari.  Klængur átti þá mjög fá afkvæmi og engin komin á tamningaraldur, en ég var samt vongóð um ágæti hans.


Klængur frá Skálakoti, knapi er Vignir Siggeirsson

Einhverju seinna sá ég frétt á hrossaraekt.is um að það væri verið að stofna hlutafélag um Klæng og næstum allir hlutirnir seldir.  Ég er nú oftast týpan sem hugsa og læt mig dreyma um hvað ef þetta og hvað ef hitt, en ég varð svo spennt og gat ekki sleppt þessu tækifæri, ég hafði samband við Guðmund, sem var þá aftur kominn með Klæng, og sagði að ég hefði áhuga á að kaupa hlut.  Því næst reyndi ég að smita þáverandi tengdapabba minn af þessum áhuga mínum á Klæng, sem tókst, og keyptum við hlutinn saman.

Stofnfundurinn var haldinn í september 2008 á Skálakoti og fengjum við þá að kynnast og sjá Klæng betur.  Ég varð strax handviss um að þarna hefði ég nú gert eitthvað með viti í ;)  Klængur þótti mér vera stórglæsilegur og svo var hann svo ljúfur í umgengni.  Það voru nokkur folöld undan honum með merum í skemmunni á Skálakoti, þau þekktu öll manninn lítið, en voru forvitin og hæfilega hugrökk að skoða fólkið sem var þarna, ekki of ágeng, en komu samt til manns.


Salka frá Skálakoti, Klængsdóttir sem sigraði folaldasýningu á Skálakoti 2008, var valin fallegasta folaldið af bæði dómara og áhorfendum

Síðan stofnfundurinn var hef ég séð fleiri dæmi um frábært geðslag Klængs, og er ég svo sannarlega sátt með mitt.  Svo er nú gaman að heyra hvað þessi fyrstu afkvæmi hans sem eru í tamningu núna eru fljót að koma til og taugasterk.
Planið var nú að fara með einu merina mína undir Klæng í sumar, en þar sem ég þarf mögulega að nota hana næsta vetur í nám, þá sýnist mér lítið ætla að verða úr því.  Ég á enga aðra meri og þar sem ég á ekki heldur annan "tilbúinn" reiðhest, þá hef ég bara ekki um annað að velja en að bíða með þessi plön mín.
Ég veit nú svosem enn ekki hvað ég ætla að gera við plássið mitt, ef einhver hefur áhuga á að forvitnast um það þá er lítið mál að senda mér e-mail.

Það er einn annar stóðhestur sem mér hefur þótt alveg einstaklega spennandi, en ég þekki hann því miður ekki vel.  Það er bara eitthvað við hann sem heillar mig og er ég að vonast til að geta notað hann í framtíðinni.  Það er hann Sólon frá Skáney undan Spegli frá Sauðárkróki.  Spegill gaf okkur líka gæðingana Straum frá Sauðárkróki og Hvíta-sunnu frá Sauðárkróki, áður en hann var geldur held ég 6 vetra, algjör synd.  Sjálfur rétt skreið hann í fyrstu verðlaun, en af 38 afkvæmum hans eru 8 dæmd, þar af 4 með fyrstu verðlaun.  Nokkuð gott hlutfall hugsa ég nú bara.


Sólon frá Skáney, rauðblesóttur gæðingur

Auðvitað sér maður reglulega stóðhesta sem vekja áhuga hjá manni, sem og smitast maður af áhuga annara, en í augnablikinu eru nú ekki kanski margir sem ég er að hugsa um að nota, enda á ég bara eina meri og ýmislegt getur breyst á næstu árum, nýjar stjörnur, hestar fara úr landi, hestar sem maður bjóst ekki við miklu af koma á óvart, hver veit :)  Þetta er allavega alveg hrikalega skemmtilegt áhugamál og gaman að pæla í :)

29.04.2010 20:23

Útskrifuð!!

Jæja þá er 2 ára námi í Reiðmanninum lokið!  Þetta var ótrúlega fljótt að líða og ég vona það innilega að það verði bætt við 3 árinu :)  Það hefur eitthvað verið rætt en ekki komin endanleg niðurstaða, það átti að funda á næstunni með skólastjóra LBHÍ (held bara í þessari viku) um hvort það yrði þriðja árið.  Allavega er alveg gífurleg aðsókn í námið og hafa umsjónarmenn þess frekar verið að bægja fólki frá en að auglýsa það, þar sem það komast bara ákveðið margir að og þetta er auðvitað enn á tilraunastigi.  Það er ekkert annað nám í boði sem er upp sett eins og Reiðmaðurinn, þar sem fólk mætir eina helgi í mánuði, vinnur svo heima við með hestana sína og fær svo áframhaldandi hjálp með þau verkefni sem voru sett fyrir.


Útskriftahópurinn, árgangur 2008-2010

Útskriftin fór þannig fram að fyrst mættum við í Ásgarð uppá Hvanneyri og hlustuðum á ávörp, fengum skírteinin okkar og jakka merkta Reiðmanninum og nafninu okkar :)  Svo var haldið upp á Mið-Fossa þar sem allir fóru saman í reiðtúr.  Veðrið var ágætt fyrir utan smá snjókomu á tímabili, en það entist stutt.  Það var stór hópur sem fór saman og fór þetta allt voða vel fram :)  
Eftir reiðtúrinn var svo matur uppá Mið-fossum og spjallað saman fram á kvöld.  Þetta var bara alveg æðislega gaman :)  Sérstaklega að hlusta á kenningar Reynis og Þorvalds um keppnisskap og ræktun ;)


Mynd tekin af mér og Mánadís í lokaprófinu okkar, að undirbúa fyrir framfótasnúning.

Prófin gengu ágætlega hjá mér (bæði bóklega og verklega) og fór ég svo með Móra litla í frumtamningarmat hjá Reyni Aðalsteinssyni þann 12. apríl síðastliðinn.  Reynir var bara virkilega ánægður með mig og hestinn og sagði að ég væri búin að leggja góða vinnu í hann og þetta væri allt á réttri leið hjá mér :)  Hann sagði líka að Móri væri jákvæður og það væri öruglega gaman að vinna með hann, sem það er, svo sagði Reynir að þetta yrði öruglega viljugur hestur :)


Móri á feti í frumtamningarmatinu

Ég var auðvitað bara rosalega ánægð með að fá svona góða umsögn frá svona snillingi eins og Reyni, sérstaklega þar sem þetta er í fyrsta skipti sem ég er ein og eftirlitslaus í tamningunni :)  Miðað við hvað það er gaman að vinna með Móra þá hlakkar mig til að gera þetta aftur :)

Móri litli bætir sig daglega og er farinn að ná góðu flæði á töltinu, í byrjun var þetta alveg hriiiiiikalega hægt hjá honum en við vorum ekkert að flýta okkur þannig það var nú bara allt í lagi :) 
Á tímabili var þrennskonar tölt í honum: þrístuðningur (þetta byrjaði nú soldið þannig hjá honum), flæðandi og svo átti hann það til að tipla alveg rosalega, þvílíkt skopp að framan, en þetta er allt að verða voða smooth hjá honum núna :D
Hann virðist eiga auðvelt með töltið og td þó hann sé bara nýbyrjaður að tölta, þá getur hann tekið brekkur upp í móti á tölti, eitthvað sem Mánadís vill enn helst ekki gera (hún á það til að detta á brokk um leið og það kemur einhver halli að viti upp í móti).  Hinsvegar á hann svolítið til að missa taktinn þegar hann er að tölta niður í móti.


Reynir að fara yfir nokkur atriði með okkur eftir matið

Hann á það til að vilja svolítið flýta sér þegar hann nær þessum fljótandi takti upp á töltið en iðulega þegar hann nær ákveðnum hraða dettur hann á brokkið, því maður er nú auðvitað ekki alveg kominn með neina yfirferð af viti ;)  Helst reyni ég nú samt að láta hann tölta hægt, því ég vil auðvitað reyna að halda honum í góðum burði meðan við erum að ná þessu.  Hann er svo rosalega taumléttur að ég þarf bara rétt að minna hann á tauminn og þá hægir hann niður og gerir bara eins og ég bið :)
Mér þykir hann allavega alveg rosalega skemmtilegur, hann er glaður og vill vera með manni.  Hann hefur einstaka sinnum ákveðið að testa mig og gá hvað hann kemst upp með, með því td að snúa við bara allt í einu, en þar sem hann fær ekki að komast upp með það þá hættir hann því alveg um leið.
Mér finnst eins og hann hafi mjög gott fet og stökk (enginn smá kraftur í því!), töltið er allt að koma til en brokkið er kanski hans veiki blettur, en það er bara að vinna í því :)  Hann á mjög auðvelt með að sveigja sig til vinstri en er enn stirður upp á hægri, ég þarf bara að taka það fyrir.


Þau vilja voða mikið tala við mann bæði tvö :)

Mánadís greyið fékk svo múkk um daginn, dýralæknirinn sagði að það gæti verið útaf ryki en maður veit svosem aldrei, svo margt sem getur valdið því.  Ég hef allavega verið að bera á það daglega og stundum tvisvar á dag (þegar maður nær því) en í augnablikinu er þetta bara sár.  Hún er svo mikil prinsessa að hún lét alveg vita um leið og eitthvað var að, þetta var nú aldrei stórt en það blæddi aðeins úr og það var komið hrúður þegar ég fattaði það, núna er hún aftur farin að hegða sér eðlilega, eða jah svo gott sem.  Vorið komið í hana og greinilegt að stóðhesturinn í næsta húsi er voða heitur eitthvað, svo þykist hún allt í einu vera orðin eitthvað stressuð og bregður við furðulegustu hluti.  Í dag td startaði einhver diesel bíl við hliðiná okkur og mín stökk nú bara upp á öllum fjórum eins og köttur með mig á baki, sem betur fer verður þetta aldrei meira hjá henni :)

Allavega er ég bara ótrúlega ánægð með þessa tvo æðibita sem ég á, Mánadís og Móra :)

16.01.2010 17:10

Smá fréttir

Jæja tamningin á Móra gengur vel, ég er farin að fara á bak inní gerði og við ráfum svona aðeins um, sikk-sökkum soldið og stoppum.  Hann hefur enn sem komið er ekkert sýnt nema góðann samstafsvilja og er ekkert að stressa sig yfir því sem ég bið hann um!  Mikið er ég fegin að vera með svona rólegt trippi í þetta fyrsta skipti sem ég er að gera reiðfært :)


Svarta bollan

Ég fór svo í dag í einkatíma hjá Didda Bárðar með Mánadís og það var sko aldeilis tekið á því, en ég er handviss um að þetta var eitthvað sem við báðar þurftum á að halda og núna verður farið aðeins öðruvísi í hlutina.  Ég hef aðeins verið í vandræðum með að hún er framþung, og vantaði ráð um hvernig ég ætti að laga það.  Það er heilmikið eftir af vetrinum enn og það verður spennandi að sjá hvort við náum ekki að bæta okkur fyrir vorið.


Mánadísin var nú ekkert hrikalega sátt með þennan gusugang í manni

Svo er maður nú farin að pæla hvað gerist næsta sumar, ég á pláss undir Klæng frá Skálakoti  (þar sem ég á hálfann hlut í honum) en aðalspurningin er hvort ég tími að missa Mánadís í folaldseignir strax, og vera þá bara með Móra næsta vetur sem er nú bara nýbyrjað á.
Eitthvað var ég að hugsa til þess að leigja meri til að setja undir hann, og þá kanski litförótt, því mér þykir leiðinlegt að vita til þess hvað það er orðið lítið til af þessum lit á landinu.
Annars þá gæti maður líka alltaf reynt að selja plássið bara, þetta kemur allt í ljós, það er nú bara janúar.


Klængur frá Skálakoti

Eitthvað vesen hefur verið á mér með hesthúsapláss, og hef ég fengið að vera hjá vinkonu minni í Andvara síðan 2. í jólum, ætlaði að vera þar bara í nokkra daga, en húsið sem ég ætlaði að fara í stendur enn tómt og ég vil ekki vera ein þar með tvo hesta ef ske kynni að það myndi frjósa mikið.  Mögulega er verið að bjóða mér að vera áfram þar sem ég er núna og það væri auðvitað bara frábært ef það gengur upp :)
Ég er allavega áhyggjulaus yfir þessu, svona reddast nú alltaf, nóg er til af hesthúsum á höfuðborgarsvæðinu :)
Flettingar í dag: 46
Gestir í dag: 17
Flettingar í gær: 29
Gestir í gær: 16
Samtals flettingar: 93696
Samtals gestir: 27866
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 23:28:28